Sameiginlegt dagatal
Æfingar, afmæli, foreldrafundir og vaktir á einum stað, í lit hvers og eins. Tengdu Google-, Apple- eða Outlook-dagatalið, eða taktu mynd af mánaðarplani leikskólans og viðburðirnir fara beint inn.
Memor heldur utan um dagatal fjölskyldunnar, matseðil vikunnar, innkaupalistann, heimilisverkin, daginn hjá börnunum og fleira. Allt á einum stað, í símanum, spjaldtölvunni og/eða í vafra.
Ekkert greiðslukort til að byrja. Virkar á iPhone, Android, iPad og í tölvu.


Í stað fimm mismunandi appa, miða á ísskápnum og skilaboða fram og til baka.
Æfingar, afmæli, foreldrafundir og vaktir á einum stað, í lit hvers og eins. Tengdu Google-, Apple- eða Outlook-dagatalið, eða taktu mynd af mánaðarplani leikskólans og viðburðirnir fara beint inn.
Skipulegðu kvöldmatinn fyrir vikuna á nokkrum mínútum. Allar uppskriftirnar þínar á einum stað.
Einn listi sem allir á heimilinu sjá. Hráefnin úr matseðlinum fara beint á listann og þú getur hakað við í búðinni.
Endurtekin verk eftir dögum, vikum eða mánuðum. Verkefni sem enginn er skráður fyrir bíða sem laus verkefni og hver sem er getur tekið þau.
Morgun-, síðdegis- og kvöldrútína með myndaspjöldum sem börnin skilja sjálf, líka þau sem eru ekki farin að lesa. Stjörnur og verðlaun fyrir verkin.
Settu spjaldtölvu upp á vegg og allir sjá daginn sinn: klukkuna, dagskrána, kvöldmatinn og hver á að gera hvað. Sendu skilaboð á skjáinn, teldu niður í næsta stóra dag og á kvöldin dimmir skjárinn.
Fastir reikningar með gjalddaga, tekjur mánaðarins og sameiginleg sparnaðarmarkmið. Einfalt yfirlit sem þú kveikir á ef þú vilt, ekki tengt bankanum.
Skráðu það sem þú gerðir, jafnóðum. Raðaðu verkunum í herbergi, sjáðu hvað er langt síðan síðast og hvað þið náðuð að gera í vikunni.
Tilkynning áður en viðburður byrjar, þegar tímastillirinn klárast eða þegar einhver sendir áríðandi skilaboð á heimilið.

Í Börn-hlutanum fær hvert barn sitt sjónræna skipulag. Stór myndaspjöld sýna hvað á að gera og barnið hakar sjálft við. Minna tuð, meira sjálfstæði.


Raðaðu réttum á vikuna, ýttu á einn hnapp og hráefnin bætast á innkaupalistann. Sá sem fer í búðina sér listann í sínum síma og allir sjá hvað er komið.
Heimilisskipulagið á ekki að taka of mikinn tíma.
Ein áskrift dugar fyrir alla fjölskylduna. Bjóddu maka eða öðrum fullorðnum á heimilið og þið notið sama dagatal, sama matseðil og sömu lista.
Áskriftin er greidd á öruggan hátt í gegnum Teya.
Ekkert greiðslukort þarf til að prófa.
Já. Memor er hannað á íslensku frá grunni. Hægt er að skipta yfir á ensku í stillingum.
Nei. Memor opnast í vafranum og þú bætir því á heimaskjáinn í símanum eða spjaldtölvunni. Eftir það opnast það eins og hvert annað app. Í tölvu getur þú notað Memor beint í vafranum eða sett það í Dock eða á verkstikuna.
Fyrstu 14 dagarnir eru ókeypis og það þarf ekki að skrá greiðslukort. Eftir það velur þú áskrift: 1 mánuður á 1.790 kr., 6 mánuðir á 8.900 kr. eða 12 mánuðir á 14.900 kr. Áskriftin endurnýjast ekki sjálfkrafa. Þú greiðir bara fyrir tímabilið sem þú velur og ákveður hvort þú heldur áfram. Þannig lendir enginn í áskrift sem gleymdist að segja upp.
Já. Dagatöl frá Google, Apple og Outlook birtast í Memor og uppfærast sjálfkrafa. Þú velur hver í fjölskyldunni á hvern viðburð.
Já. Þú býður öðrum fullorðnum á heimilið og þið sjáið sama dagatal, matseðil og lista, hvort úr sínum síma. Börnin nota Börn-hlutann í tæki foreldris.
Já, ef þú vilt. Undir Fjármál skráir þú fasta reikninga, tekjur og sparnaðarmarkmið og hakar við þegar reikningur er greiddur. Memor tengist ekki bankanum og hlutinn er falinn þar til þú kveikir á honum í stillingum. Unglingar á heimilinu sjá hann ekki.
Gögnin eru geymd á netþjónum í Evrópu. Nánar er fjallað um það í persónuverndarstefnu Memor.
Engin greiðsla, engin skuldbinding. Vonandi aðeins minni ringulreið.
Prófa frítt